Færsluflokkur: Ljóð
15.10.2007 | 08:52
Nýr meirihluti
Margur verður af aurum api,
allavega það sannast nú.
Þó flensu Bjössi fylgi tapi,
fagnar Dagur og hans frú.
Ljóð | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
28.6.2007 | 13:56
Þingblót á Þingvöllum
Þann 21. júní var skundað á Þingvöll, þar var allsherjarþing ásatrúarfélagsins sett með viðeigandi athöfn og blóti.
Kvæðamannahópurinn bragi kvað stemmur. Þetta var í alla staði frábær dagur, sólin skein og andvarinn lék blítt við kynn og fuglar sungu í trjánum.
Auk þessara hluta fór fram gifting og siðfesta að heiðnum sið.
Ég setti inn nýtt myndaalbúm undir heitinu Þingblót á Þingvöllum, þar er hægt að sjá myndir frá þessum degi.
Ljóð | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
26.6.2007 | 17:13
Góða veðrið
Fuglar kendir furðu við,
finnast nú á vappi.
Skapa ansi skrýtinn klið,
skoppa um af kappi.
Ljóð | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
26.6.2007 | 12:06
Hitabylgja víða erlendis
Grillast búkar, brúnast vel
beiskur drýpur sviti.
Drykki teyga úr djúpri skel,
djöfullegur hiti.
Ljóð | Breytt s.d. kl. 12:48 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
19.6.2007 | 15:59
Til allra kvenna af Hraunkotsætt í tilefni 19.júní
Hraunkots ættar fögru fljóð,
falleg saman hnýta ljóð.
Norðurþingeyskt braga blóð,
blæðir yfir vora þjóð.
Ljóð | Breytt s.d. kl. 16:03 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
1.6.2007 | 08:19
Frændi
Sigurður um sveitir fer,
sefar hrúta þjáða.
Fagrar rúnir fénu sker,
fyrir þessum kláða.
Ofanritaða vísu samdi ég eftir að hafa séð neðangreinda frétt í bændablaðinu:
Galdraþulan sem dugði
Sigurður segir að hann hafi fengið sunnlenskangaldramann, Hilmar Pálsson frá Hjálmsstöðum, til aðsemja þulu sem flutt skyldi yfir efasemdarmönnumfyrir norðan. Hilmar var beðinn um að setja sig í sporkláðakindar og yrkja í orðastað hennar þar sem húnlýsti tilfinningum sínum og líðan. Þulan er á þessaleið:
Ég er geld og golsótt ær
gnaga mig stöðugt lýs og flær
valda mér ama og angri þær
sem er þó létt hjá hinu,
heita helvítinu,
að kláðamaur í milljónum
mínum þjakar útlimum,
baki, síðum, bógunum,
bringukolli og eyrum.
Nú ætla ég frekar enginn vilji heyra um.
Af sjálfri mér lítið eftir er
engu lambi ég framar ber
því jafnvel hrútnum hryllir við mér
það held ég sé að vonum
því enga hef ég blíðu að bjóða honum.
Þessar nauðir náttúruna lamar
notið get ég lífsins ekki framar.
Þessa þulu flutti ég gang eftir gang yfir þeim sem
voru efins eða andvígir því að fé þeirra væri sprautað
við fjárkláða, þar til þeir gáfust upp og urðu samvinnufúsir.
Málið leystist og um það varð full samstaða
sem hefur borið þann árangur að ekki hefur
komið upp kláðatilfelli í landinu í fjögur ár og nú
vonumst við til að sauðkindarinnar forna fjanda sé
þar með útrýmt úr landinu. En víst er það alls ekki
og fulla aðgát þarf að sýna öllum grunsamlegum einkennum
á húsi, réttum og sláturhúsum og kalla til
dýralækni sér að kostnaðarlausu ef grunur vaknar,
sagði Sigurður Sigurðarson.
Ljóð | Breytt s.d. kl. 08:22 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
31.5.2007 | 09:56
Goðorð
Hljóðs bið eg allar
helgar kindir,
meiri og minni
mögu Heimdallar.
Nú meiga Eyfirðingar, Svarfdælingar og aðrir nærsveitarmenn taka gleði sína upp á nýjan leik. Þeir meiga búast við árlegu blóti frá undirrituðum. Staðsetning ásamt tímasetningu verður auglýst síðar.
Lögréttufundur haldin 23. maí kl 17.30
Mættir voru Hilmar Örn, Egill, Jónína, Eyvindur, Rún, Garðar, Hildur og Halla. Seinna mætti Árni.
Dagskrá fundarins:
1. Bautasteinn Sveinbjarnar Beinteinssonar
2. Hofbyggingin
3. Þingblótið Árni Einarsson samþykktur sem goðaefni?
4. Önnur mál
3. Röð dagskrárliða var breytt. Áður en Árni kom á fundinn var hans mál tekið fyrir. Fundarmenn voru allir sammála um að Árni yrði samþykktur sem goðaefni og yrði það borið upp við þingheim á Allsherjarþingi í haust.
Árni Einarsson Hofgoði.
Ljóð | Breytt 28.6.2007 kl. 14:11 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
29.5.2007 | 12:56
Ferðavísur
Var á leiðini heim í gær að norðan.
Í austur Húnavatnssýslu kom þessi;
Skýin brjóta, skína í gegn,
skærir fagrir angar.
Sunna heftir húnvetnskt regn,
huga minn svo fangar.
Þessi í Hrútafyrði;
Fjörðinn-Hrúta fagran leit,
fjöru öldur bláar.
Gjöful er sú gróna sveit,
grænar brekkur háar.
Ljóð | Breytt s.d. kl. 12:58 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
23.5.2007 | 16:27
Landinu blæðir
Móðurjörð hvar maður fæðist,
mun hún eigi fleztum kær?
Þar sem ljósið lífi glæðist,
og lítil sköpun þroska nær.
Þetta er úr Númarímum eftir Sigurð Breiðfjörð og á mjög vel við þessa frétt.
Alcoa skoðar möguleika á að reisa álver á Grænlandi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Ljóð | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
17.5.2007 | 22:45
Svarfdælskar vísur I
Hér á eftir koma svarfdælskar lausavísur, teknar úr bókunum Svarfdælingar um mann og ættfræði svarfdælinga sem Stefán Aðalsteinsson tók saman og voru gefnar út árin 1976 og 1978.
Að þéttbýlinu í Svarfaðardal víkur trúlega gömul og alþekkt vísa, þótt engin viti aldur eða tildrög hennar:
Eitt sinn hittust hrafn og valur.
Hvor varð öðrum feginn.
Þá var setinn Svarfaðardalur.
Sinn fló hvorumegin.
Jón á Karlsá kvað um Snorra Rögnvaldsson frá Hálsi:
Situr á Hálsi siðugur
í sveitabyrjun vorri
léttsinna og liðugur
laufaviður Snorri.
Eiríkur Pálsson kvað um Sigfús Sigfússon á Hálsi:
Súfgis nefna má ég mann
mætu vafinn gengi,
á Barkastöðum hefur hann
hjúum ráðið lengi.
Björn Gíslason á Bakka kveður um Benedikt Sumarliðason á Hamri í formannavísum 1788:
Benedikt á dælu
dýri situr hátt
kaldrar norðankælu
krympast ey við slátt
leggur furðu langa
línu í djúpan sjó
fisk því margan fangar
fermir árakló
flyðra, ýsa, háfur, hlýr,
honum er vís og þorskur nýr,
keila, lýsa, karfinn rýr,
kolar og langan mjó.
Jón Hallgrímsson kveður um Gísla Jónsson á Hamri í formannavísum sínum frá 1845:
Hann Gísli á Hamri / hefi ég að því gáð,
þó glýjan glamri / svo gæti afla náð,
rastar hesti rennir / reyðar heyði á,
næsta fast því nennir / að neyða skeið um sjá.
Yst við tengur afla fær,
upp þá gengur ránar mær,
listadrengur landi nær,
Lágarbúðum hjá.
Jón á Karlsá yrkir um tengdason sin Sigurð Jónsson á Hrísum:
Á Hrísum byggir hringaver,
hreppstjóri nafnfrægur,
Sigurður heitir seimagrér,
síglaður og þægur.
Einar Sæmundsson stúdent yrkir um Þorlák Þorláksson á Skáldalæk í formannabrag um 1735:
Þorlákur á humrahöll
hýðir þó sé báran stríð
þollur skelldi skötuvöll
á skíði Ránar marga tíð.
Ljóð | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)